mánudagur, desember 06, 2010
föstudagur, desember 03, 2010
föstudagur, nóvember 19, 2010
Varúðarnálgunin
Í niðurstöðum Ríó-ráðstefnunarinnar var viðurkennt það sjónarmið að náttúran skuli að jafnaði njóta vafans. Þetta er hin svokallaðavarúðarnálgun (precautionary approach) sem er að finna í Ríóyfirlýsingunni um umhverfi og þróun. Þessi nálgun er sett fram í 15. grein með eftirfarandi hætti: Í því skyni að vernda umhverfið skulu ríki í ríkum mæli beita varúðarreglunni eftir því sem þau hafa getu til. Skorti á vísindalegri fullvissu, þar sem hætta er á alvarlegu eða óbætanlegu tjóni, skal ekki beitt sem rökum til þess að fresta kostnaðarhagkvæmum aðgerðum sem koma í veg fyrir umhverfisspjöll. Varúðarreglan hefur á undanförnum áratugum rutt sér til rúms sem meginregla í alþjóðlegum umhverfisrétti. Hún var fyrst sett fram árið 1987 í Lundúnaryfirlýsingunni sem kom í kjölfar aþjóðlegrar ráðstefnu um verndun Norðursjávar og er nú einn af hornsteinum umhverfisréttarins. Varúðarreglan á við þegar fyrir liggur, að framkvæmd muni líklega valda alvarlegu eða óbætanlegu umhverfistjóni, en ekki er hægt að sanna það vísindalega. Þá ber að beita þeim aðgerðum sem nauðsynlegar teljast til þess að koma í veg fyrir slíkt tjón og óheimilt er að bera fyrir sig skort á vísindalegri fullvissu um að tjón sé yfirvofandi.
mánudagur, nóvember 08, 2010
sunnudagur, nóvember 07, 2010
- Uppbygging stórra gróðurhúsa sem myndu framleiða lífrænt og ekki erfðabreytt grænmeti og ávexti. Viðskipti með lífrænt vottuð matvæli eru þau viðskipti sem fara hvað mest vaxandi í Bandaríkjunum í dag, þessi viðskipti eru framtíðin, það er ekki hægt að borða ál, við getum lifað án áls en ekki án matar og vatns.
- Uppbygging heilsuferðaþjónustu sem snýst um að komast í náttúru sem er ómenguð, án mengandi efna, hávaða og ljósa.
- Uppbygging menningarviðburða út um allt land, nýta félagsheimli og bíóhús sem flest hver eru algerlega ónýtt úti á landi.
- Tækniþróun á endurnýtanlegum orkugjöfum. Sólarorku, vindorku, sjávarorku.
- Koma bönkum og stjórnvöldum í skilning um að framtíðin fellst í endurnýtanlegum orkugjöfum og að í boði séu styrir og lán fyrir þá sem vinna að þróun þessarra orkugjafa.